Þetta er auðlesanlegt yfirlit á notkunarskilmálunum.
Fyrirvari: Þetta yfirlit er ekki hluti af notkunarskilmálunum og er ekki lagalegt skjal. Það er eingöngu hentug leið til að skilja notkunarskilmálana í heild sinni. Hugsaðu um þá sem notendavæna útgáfu af því lagamáli sem er í notkunarskilmálunum.
Hluti af okkar markmiði er að:
Virkja og gera fólki kleift að safna saman og bæta fræðandi efni og annaðhvort gefa það út undir frjálsu leyfi eða tileinka það almenningi.
Dreifa þessu efni frítt um allan heim á áhrifaríkan hátt.
Þér er frjálst að:
Lesa og prenta út greinarnar okkar og aðrar margmiðlunarskrár
Deila og endurnota greinarnar okkar og aðrar margmiðlunarskrár undir frjálsu og opnu leyfi.
Gefa til og breyta margvíslegra síðna eða verkefna okkar.
Undir eftirfarandi skilyrðum:
Ábyrgð — Þú tekur ábyrgð á breytingunum þínum (fyrst við aðeins hýsum efnið þitt).
Kurteisi — Þú styður kurteist umhverfi og áreitir ekki aðra notendur.
Lögleg hegðun — Þú brýtur ekki höfundaréttarlög eða önnur lög.
Engin skaðsemi — Þú skaðar ekki vélbúnaðinn okkar
Notkunarskilmálar og samþykktir — Þú fylgir eftir eftirfarandi notkunarskilmálum og samþykktum samfélagsins þegar þú heimsækir vefsíður okkar eða tekur þátt í samfélögunum.
Með skilning á því að:
Þú gefur út framlög þín undir frjálsu leyfi — þú þarft almennt að gefa út framlög þín og breytingar á síðum okkar eða verkefnum undir frjálsu og opnu leyfi (nema framlag þitt sé gefið út í almenningi).
Engin fagleg ráðgjöf — efni greina og annara verkefna er fyrir fræðslu eingöngu og samanstendur ekki af faglegri ráðgjöf.